Kvikmyndahúsið Regnboginn við Hverfisgötuna í Reykjavík gengur í endurnýjun lífdaganna þann 15. september næstkomandi og fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna.
Bíó Paradís mun hafa á dagskrá sinni nýjar áhugaverðar kvikmyndir víðsvegar að, auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsa kvikmyndahátíðir og standa fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum. Þá er stefnt að því að koma á reglulegum skólasýningum í húsinu þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun á þessari mikilvægu listgrein. Þar verður einnig að finna veitingahús og verslun með mynddiska og annan kvikmyndatengdan varning.
„Bíó Paradís verður því nokkurskonar hjarta kvikmyndamenningar í landinu; samfélag kvikmyndaunnenda og áfangastaður allra þeirra sem vilja eiga góðar stundir í afslöppuðu umhverfi sem angar af andrúmslofti kvikmyndanna,“ segir í fréttatilkynningu.
Víða í Evrópu og á Norðurlöndum eru hús af þessu tagi en þetta mun verða samstarfsvettvangur þeirra sem koma að kvikmyndamálum í landinu.
Lovísa Óladóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Heimilis kvikmyndanna. Lovísa er kvikmyndafræðingur að mennt og hefur einnig numið rekstrar- og viðskiptafræði. Hún starfaði um árabil sem dagskrárstjóri Stöðvar 2, dagskrárstjóri Sýnar og dagskrárfulltrúi ásamt fleiri tengdum störfum.
Reykjavíkurborg samþykkti nýverið að styðja þetta verkefni um tólf milljónir króna. Verður fénu varið til að fjármagna ýmsar breytingar sem gerðar verða á húsnæðinu og til að ýta rekstrinum úr vör.
Opnunarmynd Bíó Paradísar verður tónleikamyndin Backyard eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson, sem bar sigur úr býtum á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg í vor.
Þá mun Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík taka húsið yfir í ellefu daga frá 23. september til og með 3. október. Nánar verður tilkynnt um dagskrána á næstu dögum.

