Aðeins fimm vikum eftir að hafa verið mynduð með sippuband á sundlaugarbakka er breski veðurfræðingurinn Clare Nasir komin í fantaform.
Á þessum fimm vikum hefur hún misst fimm kíló og það fer ekki framhjá neinum sem horfa á veðurfréttirnar.
Clare, sem er fertug, eignaðist barn í nóvember keppist nú við að koma sér aftur í gömlu fötin og gott betur – hún ætlar að gefa út DVD disk með kennsluaðferðum um hvernig megi koma sér í form.
Clare á nefninlega eftir að missa vinnuna sem veðurfræðingur þegar stöðin sem hún starfar við (GMTV) gerir áherslubreytingar og skiptir um nafn. Diskurinn hennar mun koma út fyrir jól.
Veðurfræðingurinn fagri þakkar heilbrigðu mataræði og tveggja stunda lotum, þrisvar í viku í ræktinni fyrir hversu vel hefur tekist til en galdurinn er þó fyrst og síðast í ísskápnum.



