
Deutsche Bank vildi ekki færa niður skuldir Björgólfs Thors í sínum bókum og því er hann enn stór hluthafi. Bankinn krafðist þess hinsvegar að íslensku bankarnir felldu niður persónulegar ábyrgðir Björgólfs.
Íslenskir kröfuhafar Björgólfs Thors Björgólfssonar felldu niður allar persónulegar ábyrgðir á hendur honum og var það hluti af samkomulagi um allsherjaruppgjör sem leitt var af Deutsche Bank, stærsta kröfuhafa Actavis, en íslensku bönkunum var stillt upp við vegg af þýska bankanum. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Björgólfur Thor kynnti í júlímánuði að hann hefði gengið frá öllum skuldum sínum og að „samkvæmt samkomulaginu (við bankana) munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir,“ einsog sagði í yfirlýsingu hans frá þeim tíma sem lesa má hér.
Eins og fram hefur komið var þungamiðjan í samkomulaginu eignarhlutur Björgólfs Thors í Actavis og var það leitt af stærsta kröfuhafa Actavis, Deutsche Bank. Ekkert hefur verið greitt ennþá og byggist uppgjörið á væntingum um verðmæti Actavis. Einn helsti arkitektinn að þessu samkomulagi af hálfu Deutsche Bank var Stephen Pitts, framkvæmdastjóri hjá bankanum Lundúnum (e. Managing Director, European Leveraged Finance). Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 var liður í samkomulaginu að allar persónulegar ábyrgðir innlendra lánardrottna á hendur Björgólfi Thor hér heima á Íslandi voru felldar niður. Gegn þessari kröfu, sem sett var fram af hálfu Deutsche Bank, fengu íslensku bankarnir að vera með í samningi um uppgjörið.
Samkomulagið um allsherjar uppgjör byggir á að við sölu Actavis innan þriggja til fimm ára fari þrír og hálfur milljarður evra af söluverðinu beint til Deutsche Bank. Samkvæmt heimildum fréttastofu á einn og hálfur milljarður evra að fara til íslenskra kröfuhafa og þeirra á meðal eru Straumur, Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing og erlendra kröfuhafa eins og suður-afríska bankans Standard Bank. Ef verðið verður hærra skiptist afgangurinn þannig að Deutsche Bank fær 70 prósent umfram kaupverð og Björgólfur Thor og lykilstjórnendur Actavis 30 prósent. Af þessum 30 prósentum er hann með langstærstan hluta upphæðarinnar, eða um 80 prósent.
Hjá Landsbankanum var Björgólfur Thor í persónulegum ábyrgðum fyrir 180 milljónum evra, jafnvirði um 27 milljarða króna. Persónuleg ábyrgð fyrir þessu láni var felld niður og hluti af samkomulaginu var að bankinn myndi ekki lögsækja Björgólf Thor og hefur verið gengið frá samningi þess efnis milli skilanefndar Landsbankans og Björgólfs Thors, samkvæmt heimildum fréttastofu. Heimildarmaður fréttastofunnar hjá Landsbankanum orðaði þetta svona:
„Það sem við erum að gera er að semja um skuldauppgjör. Ef að þetta gengur eftir þá fáum við okkar. Það er hins vegar ekki eins og Björgólfur Thor hafi tekið upp veskið og greitt okkur. Við áttuðum okkur aldrei á því hvers vegna Deutsche Bank ákvað að fara þessa leið.“
Fréttastofa Stöðvar 2 bar efni fréttarinnar undir Ragnhildi Sverrisdóttur, talsmann Björgólfs Thors, og fékk síðar eftirfarandi svar: „Björgólfur Thor er bundinn trúnaði um einstaka atriði í uppgjörinu við lánardrottna og hefur því ekki heimild til að tjá sig um málið umfram það sem kom fram í tilkynningu hans frá því í júlí sl.“
