Þórunn Sveinbjarnardóttir biðst innilega afsökunar á ummælum sem hún lét falla og heyrðust í beinni útsendingu í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag. Einsog Eyjan sagði frá sagði hún orðrétt: „Segðu frænda þínum að hoppa uppí rassgatið á sér“.
Þórunn segir orð sín hafa verið í algeru gríni, við fréttamann RÚV, en það réttlæti þó alls ekki orðavalið, burtséð frá því hvort það heyrðist í útvarpi eða ekki. Í viðtali við síðdegisútvarp Rásar 2 nú áðan sagði hún að áður en viðtalið hófst hafi frændi fréttamannsins átt leið framhjá og gert hróp að henni. Sá reyndist frændi fréttamannsins. Í miðju viðtalinu kallaði hann svo aftur „Óþjóðalýður!“, einsog heyra má í upptökunni. Því hafi hún pirrast aðeins við þessi orð frændans.
„Mér fannst þetta svona, æ, það greip mig einhver pönkari, svei mér þá,“ segir Þórunn. „Ég hef það svo sem ekki mér til afsökunar að vera í nikótín-fráhvarfi. En þetta bara datt út úr mér, mér þykir það afar leiðinlegt, að ég skuli segja svona yfirhöfuð. Svo var þetta auðvitað í beinni og allir heyrðu, sem mér þykir alveg mjög leiðinlegt.“
Hún segist ekki reyna að afsaka orð sín, en vissulega hafi stjórnmálafólk mátt heyra mjög gróft orðaval frá öðrum undanfarin misseri og kannski hafi einfaldlega komið að því að hún springi. Þó hafi þetta verið sagt í mjög góðum tón við fréttamann RÚV.
„Ég var reyndar bara sposk við hann Ægi, en auðvitað skiptir engu hvort þetta var í beinni útsendingu eða ekki, maður á bara ekki að tala sovna. Þannig að ég biðst innilega afsökunar á því.“
Segir ráðherravalið enn óútkljáð
Aðspurð sagði Þórunn að enn væri ekki búið að ákveða hvernig endanlegar breytingar á ríkisstjórninni verða. Fyrir liggur að Ögmundur Jónasson kemur í stjórnina og þau Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir hverfa úr stjórninni.
Heimildir Eyjunnar herma að gert hafi verið ráð fyrir að Álfheiður Ingadóttir og Kristján Möller fara einnig úr stjórninni, en ráðuneyti þeirra verða sameinuðu öðrum síðar í haust. Gangi það eftir vantar aðeins nafn á einum nýjum ráðherra Samfylkingarinnar.
Heimildir Eyjunnar segja að vandræðin stafi aðallega af því hvernig tryggja megi annarsvegar jafnt hlutfall kynja í stjórninni og svo þátt landsbyggðarinnar í ríkisstjórn. Ef jafnvægi eigi að nást milli kynja þurfi kona að koma í stjórnina og hefur verið rætt um Oddnýju Harðardóttur í því sambandi. Þingmenn landsbyggðarinnar eru ósáttir við þau málalok og hefur Ólína Þorvarðardóttir ekki leynt áhuga sínum á að taka sæti í stjórninni. Hún er þó aðeins önnur á lista í sínu kjördæmi, á eftir Guðbjarti Hannessyni, sem nýtur mikils stuðnings í þingflokknum og er jafnvel talinn hæfastur til að taka við útgjaldamesta ráðuneytinu – sameinuðu velferðarráðuneyti, áður félagsmála- og heilbrigðisráðuneyti. En verði hann ráðherra eru þá kynjahlutföllin í ólagi og málið komið í hring hvað það varðar.

