
Þórunn áttaði sig ekki á því að óheflað orðaval hennar heyrðist í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, mælti með því í útvarpsviðtali að maður hoppaði „uppí rassgatið á sér“, svo notuð séu orð hennar sjálfrar.
Þórunn var í viðtali í beinni útsendingu í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins, vegna breytinga á ríkisstjórninni sem nú eru til umræðu í þingflokkum stjórnarflokkanna. Einhver hróp virðast hafa verið gerð að henni og fréttamanni á meðan á viðtalinu stóð.
Viðtalið hefur þegar verið sett inn á Youtube og er vakin athygli á því að „gullmoli“ falli í lokin, þegar tímalínan er á 01:35, en þá segir hún orðrétt:
„Segðu frænda þínum að hoppa uppí rassgatið á sér“.
Þórunn er sem fyrr segir á maraþonfundi þingflokkanna, þar sem ráðherraskiptin eru til umræðu, sem og ýmis önnur mál vegna þingsins sem hefst á morgun, og hefur því ekki svarað síma sínum til að skýra þetta óheflaða orðalag. Þá liggur ekki fyrir hver fékk þessa köldu kveðju né hver frændinn er.
Svona hljómar viðtalið einsog það er á youtube:
