Fimmtudagur - 2.9 2010 - 10:23 - Ummæli ()

Alþingi kemur saman í dag. Jóhanna flytur skýrslu um störf og stefnu stjórnarinnar

Alþingi kemur saman til fundar eftir sumarhlé eftir hádegi í dag. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun flytja skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar, og síðan verða almennar umræður.

Á morgun hefst þingfundur kl. 10:30.

Óvissa ríkir um hvaða mál verða afgreidd á haustþinginu. Líklegt er að ríkisstjórnin vilji fá frumvarp um breytingar á skipulagi Stjórnarráðsins samþykkt.

Stefnt mun að því að þingið standi aðeins í tvær vikur að þessu sinni og vetrarþing komi síðan saman 1. október.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar