Fimmtudagur - 2.9 2010 - 14:00 - Ummæli ()

Demi Moore: Flottari 47 ára en á þrítugsaldri, myndar sig á bikiní

Demi Moore hefur ekkert að fela enda með afbrigðum myndarleg kona sé tekið tillit til þess hversu gömul hún er.

Demi er dugleg að birta myndir af sér á Twitter en þar geta aðdáendur leikkonunar fylgst með hennar daglega lífi og starfi í myndum og máli.

Vanalega birta 47 ára gamlar konur ekki bikinímyndir af sjálfum sér á netinu en það er annað uppi á teningnum hjá Demi Moore. Hún hefur greinilega verið svo sátt við útkomnuna að hún ákvað að deila myndunum með heiminum.

Af myndunum að dæma er Demi í mikið betra formi nú en fyrir tæpum tuttugu árum þegar hún var á þrítugsaldri. Þá náðust m.a. myndir af henni þar sem hún var að koma upp úr sjónum með ansi mikla appelsínuhúð á digrum lærum. En kannski var það bara ljósmyndarinn?

Að minnsta kosti nær Demi góðum skotum af sjálfri sér á baðfötunum.

Demi og hinn 15 árum yngri eiginmaður hennar Ashton Kutcher hafa nýlega lokið við svokallaðan detox kúr sem nýtur mikilla vinsælda hjá stjörnunum vestra um þessar mundir. Kúrinn stendur í tíu daga og á meðan bá ekki innbyrða annað en vatn, hlynsýróp, cayenna pipar og sítrónu.

Gwyneth Paltrow og Beyonce Knowles eru meðal þeirra sem halda því fram að kúrinn losi líkamann við eiturefni og komi í veg fyrir löngun í sætindi en gagnrýnendur halda því fram að þetta geti verið skaðlegt heilsunni enda óhæft að neyta einungis um 600 hitaeininga á dag sem er þriðjungur þess sem líkaminn þarf á að halda yfir daginn.

Demi og Ashton bregða á leik með gleraugu. Hann er 15 árum yngri en Demi og þau hafa verið saman í nokkur ár.

Fyrir utan strangt mataræði hefur Demi Moore eytt mörgum milljónum í fegrunaraðgerðir og meðal annars látið sjúga fitu úr hnjánum.

Þessa dagana stendur þessi fagra þriggja barna móðir í tökum á myndinni LOL en þar leikur hún á móti Miley Cyrus og Ashley Green.

Hún hefur jafnframt nýlokið við tökur á spennumyndinni Margin Call en þar leikur hún á móti hinum stórkostlega Kevin Spacey.



Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar