Fimmtudagur - 2.9 2010 - 09:59 - Ummæli ()

Samfylkingin: Guðbjartur ráðherra. Kristján L. Möller hættir

Guðbjartur Hannesson verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti.

Samkvæmt tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur mun Árni Páll Árnason skipta um ráðherraembætti og verður efnahags- og viðskiptaráðherra en Guðbjartur tekur við félags- og tryggingaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, en þau verða í vetur sameinuð í eitt velferðarráðuneyti.

Verði þetta niðurstaðan er ljóst að kynjahlutfall í hinu breytta ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur verður ójafnt, sex karlar og fjórar konur. Búist er við að það muni vekja óánægju innan stjórnarflokkanna.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar