
Vinstri grænir eru æfir út í Kristján Möller fyrir að gefa ECA Program starfsleyfi fyrir herþotur rétt áður en hann hætti sem ráðherra.
Eitt síðasta verk Kristjáns Möllers sem samgönguráðherra var að gefa grænt ljós á skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program á Keflavíkurflugvelli. Mikil óánægja er með málið í röðum Vinstri grænna.
Í stjórnarsáttmálanum eru ákvæði um að Ísland skuli vinna að afvopnunarmálum. Málefni ECA Program voru rædd á síðasta flokksráðsfundi VG og var þar áréttað sérstaklega að starfsemi þess samrýmdist ekki þeirri línu sem lögð var í stjórnarsáttmála.
Einn áhrifamaður innan VG, Stefán Pálsson, gagnrýnir Kristján harðlega á facebook-síðu sinni og segist eiga „ekki orð yfir fáránlegu hefndarbroti Kristjáns Möllers. Starfsleyfið ti ECA er brot á stjórnarsáttmála og verður ekki látið viðgangast.“
Kristján Möller hefur verið ósáttur við að hverfa úr ríkisstjórn og ekki leynt þeirri skoðun sinni við samflokksmenn sína.
Ögmundur Jónasson, nýr ráðherra samgöngumála, sagði við Smuguna að hann þyrfti að fá ráðrúm til að kynna sér málið betur.
