Ljóst er að stuðningur við aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur dregist verulega saman samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent gerði fyrir samtökin Sterkara Ísland og Eyjan sagði frá í morgun. Samkvæmt könnuninni er meirihluti andvígur aðildarviðræðum eða 45,5% á móti 38,8% sem eru þeim hlynnt.
Þetta fullyrða samtökin Heimssýn í fréttatilkynningu í morgun. Heimssýn er samtök andstæðinga aðildar að Evrópusambandinu.
Samtökin benda á að stuðningur við aðildarviðræður hafi síðast verið kannaður í nóvember 2009 af Háskólanum á Bifröst fyrir Stöð 2. Þá hafi stuðningur við þær verið um 50% en andstaðan 43%. Samkvæmt því sé ljóst að stuðningurinn hafi dregist saman um rúm 11% frá því í nóvember á síðasta ári.
Heimssýn segir að skoðanakannanir undanfarinna ára hafi sýnt að gjörólíkar niðurstöður hafi fengist eftir því hvort spurt hefur verið um „aðildarviðræður“ eða „umsókn um aðild“. Stuðningur við það fyrrnefnda hafi ávallt mælst mun meiri þó hann hafi dregist saman með árunum.
Skýringin á þessum ólíku niðurstöðum sé að öllum líkindum sú að margir hafi lagt þann skilning í hugtakið „aðildarviðræður“ að um könnunarviðræður væri að ræða án allra skuldbindinga með það að markmiði að „kíkja í pakkann“ eins og gjarnan var haldið fram að væri í boði.
Heimssýn segir að greinilegt sé þó að fólk hafi smám saman áttað sig á því að slíkt væri ekki í boði og fyrir vikið hafi stuðningur við aðildarviðræður dregist saman. Nú sé orðið ljóst að Ísland sé í aðlögunarferli að ESB og því komi ekki á óvart að meirihluti sé nú andvígur þeim.
Þá segir í frétt Heimssýnar að Samtökin Sterkara Ísland, sem styðja aðild að ESB, kjósi hins vegar að bera skoðanakönnun sína nú saman við könnun sem MMR birti í byrjun júní s.l. þar sem spurt var hvort draga ætti „umsóknina“ um aðild að ESB til baka og segja að um sambærilega könnun sé að ræða. Út úr þessu fái Sterkara Ísland að stuðningur við aðildarviðræður hafi aukist þó ljóst sé að engan veginn sé hægt að segja að um sambærilegar skoðanakannanir sé að ræða.
Heimssýn segir að það sé miður að samtökin kjósi að varpa málinu fram með þessum hætti fyrst raunveruleikinn henti þeim ekki. Slíkt sé hvorki þeim né öðrum til framdráttar.
