Fimmtudagur - 2.9 2010 - 11:15 - Ummæli ()

Hreinn hættir með Birtíng: Stærsta tímaritaútgáfa landsins að fá nýjan eiganda

Tilboð hefur borist í útgáfufélagið Birtíng, stærsta tímaritaútgefanda landsins, og er líklegt að því verði tekið.


Þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins.

Hreinn Loftsson, eigandi Birtíngs, segir í samtali við mbl.is að um sé að ræða trausta aðila. Ekki fengust upplýsingar um hverjir tilboðsgjafarnir eru, né heldur um það hvaða verðmiði er settur á félagið.

„Það barst tilboð með ákveðnum skilyrðum, sem við erum að skoða núna. Hvort gengið verði endanlega að tilboðinu skýrist á næstu tveimur til þremur vikum,“ er haft eftir Hreini á vef Morgunblaðsins.

Birtíngur gefur meðal annars út tímaritin Séð og heyrt, Vikuna, Gestgjafann og Hús og híbýli.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar