Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að alger viðsnúningur hafi orðið á íslensku efnahagslífi á undanförnum mánuðum. Greina megi þetta í öllum helstu hagtölum Íslands og segir hún ríkisstjórn sína reisa íslenskt samfélag úr þeim rústum sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur skildu eftir sig.
Jóhanna lýsti þessu áliti sínu þegar hún Alþingi munnlega skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar, en umræður um hana standa nú yfir á þingi.
Sagði Jóhanna, að mikill og eftirtektarverður árangur hefði náðst og tekist hefði að snúa efnahagslífi landsins til nýrrar sóknar, tryggja jákvæð samskipti við alþjóðasamfélagið,.
Hún taldi algeran viðsnúning hafa orðið í íslensku efnahagslífi. Þannig hafi hagvöxtur mælst á ný í efnahagslífinu á fyrri hluta ársins, atvinnuleysi sé nú komið niður í í 7,5 prósent, verðbólga hafi farið úr 18,6 í 4,5 prósent á einu og hálfu ári og stýrivextir lækkað úr 18 prósentum í 7 prósent, sem eru lægstu stýrivextir frá árinu 2004. Þá benti hún á að gengi krónunnar hafi ekki verið sterkara í eitt og hálft ár.
Auk þess benti Jóhanna á að jafnvel aðildar vinnumarkaðarins hefðu lýst því nýverið yfir að kreppunni væri lokið og samkvæmt mælingum virðist bjartsýni fara vaxandi í samfélaginu.
Í ræðu sinni taldi Jóhanna komandi vetur vera „síðasta erfiða hjallann í því mikla verkefni, sem þjóðin fól Samfylkingunni og Vinstrihreyfingunni- grænu framboði að vinna við að reisa samfélagið úr þeim rústum sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur skildu eftir.“
