Viðskipti Fimmtudagur - 2.9 2010 - 16:49 - Ummæli ()

Kristján segir ekkert ákveðið með ECA þotur. Steingrímur og Jóhanna með í málinu

Kristján segir ekki búið að veita starfsleyfi fyrir ECA-þoturnar. Þá hafi formenn stjórnarflokkanna unnið með sér í málinu.

Kristján Möller, fráfarandi samgönguráðherra, segir alrangt að hann hafi ákveðið upp á eigin spýtur að veita ECA Program starfsleyfi fyrir herþotur á Keflavíkurflugvelli, einsog haldið hefur verið fram í fréttum nokkurra miðla í dag, m.a. hér á Eyjunni.

Í samtali við Eyjuna segir Kristján það rangt að hann hafi leikið einhvern einleik í málinu. Málið hafi verið lengi í skoðun og að því hafi komið nokkur ráðuneyti. Auk þess væri ekki búið að heimila starfsemina á Íslandi, heldur aðeins að fela Flugmálastjórn ákveðna undirbúningsvinnu, en málinu sé alls ekki lokið.

Kristján segist hafa unnið að málinu ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra. Þá hafi aðstoðarmaður hans og aðstoðarmaður Steingríms unnið minnisblað fyrir 10-15 dögum, sem rætt var svo á fundum ráðherranna þriggja, nú síðast að loknum ríkisstjórnarfundi í fyrradag. Þar hafi þau þrjú verið sammála um að Kristján ætti að skrifa Flugmálastjórn bréf, sem veiti stofnuninni heimild til að vinna málið áfram.

„Flugmálastjórn fær þarna heimild til að vinna ákveðna undirbúningsvinnu, en hún sendir líka erlenda fyrirtækinu spurningar um ýmis atriði sem varða starfsemina, enda margt sem þarf að fá á hreint áður en nokkuð veður ákveðið, m.a. hvort þoturnar mega lenda annarstaðar í Evrópu, um losunarmörk, hávaða og ýmislegt fleira,“ segir Kristján.

„Forsætisráðherra spurði mig svo aftur í gær hvort ég væri búinn að skrifa bréfið og ég játti því. Þannig að þetta er enginn einleikur af minni hálfu, heldur voru forystumenn ríkisstjórnarinnar með mér allan tímann. En ég legg áherslu á að það er ekki verið að samþykkja eitt né neitt, heldur að fela Flugmálastjórn að vinna málið áfram.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar