Fimmtudagur - 2.9 2010 - 09:34 - Ummæli ()

Miðaldra kona í vændi eftir atvinnumissi: Heldur úti heimasíðu á netinu

‘Neyðin kennir naktri konu að spinna’: Sjaldan hefur þetta máltæki átt jafn vel við og í tilfelli Sheilu Newcombe.

Sheila er 54 ára póst starfsmaður sem missti vinnuna fyrir þremur árum þegar útibúið lokaði. Þá brá Sheila á það ráð að opna heimasíðu en þar býður hún upp á fylgdarþjónustu og sitthvað fleira ’skemmtilegt’.

Á síðunni kallar hún sig Emily Devon, yngir sig um nokkur ár, segist vera 46 ára, og kveðst hafa áhuga á nánum kynnum við kurteisan og hreinlátan herramann.

Hún segist bjóða upp á róandi og slakandi samverustund eða örlítið villtan æsing. Einnig segist hún hafa gaman af því að láta klappa sér á þjóhnappana.

Fyrir klukkustundina rukkar Sheila að lágmarki 10.000 kr en yfirleitt í kringum 20.000.

Nótt með henni kostar hinsvegar rúmlega 100.000 kr.

Sheila er vel þekkt í heimabæ sínum Yeoford í Devon þar sem búa aðeins um 500 manns. Hún rak pósthúsið í bænum árum saman en hún segir að eftir að það lokaði hafi hún skuldað margar milljónir í íbúðarlán sem hún þurfi einhvernveginn að greiða niður.

Hún segir bæjarbúa skeggræða mikið hvað hún taki sér fyrir hendur og að ýmsar kjaftasögur hafi verið í gangi.

Sumir viðskiptavina Sheilu gefa henni ekki góð meðmæli. Þeir segja hana veita annars flokks þjónustu og að hún beri aldurinn ekki vel.

Hún vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar blaðamaður The Sun hringdi í hana.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar