Ögmundur Jónasson, nýskipaður dómsmálaráðherra, sá ástæðu til að gagnrýna fréttaflutning Ríkissjónvarpsins, í ræðu á Alþingi nú síðdegis. Sagði hann frétt Sjónvarpsins ekki traustvekjandi spegil í sálarlíf fréttastofu og að þjóðin ætti rétt á alvöru fréttafólki.
Tilefnið var frétt Svavars Halldórssonar, fréttamanns á Sjónvarpinu, í 22-fréttum Sjónvarpsins í gærkvöld, en þar sagði Svavar að búið væri að „múlbinda“ Ögmund og Jón Bjanason til að tryggja að þeir „flækist ekki fyrir“ störfum ríkisstjórnarinnar.
Ögmundur vakti sérstaka athygli á þessu í ræðu sinni á Alþingi í dag.
„Nú er allt slíkt búið, sagði fréttamaður Sjónvarpsins í svokölluðm fréttum sínum í gærkvöldi. Hann sagði óróamenn innan stjórnarliðsins hafa verið múlbundna. Margur heldur mig sig, varð mér á að hugsa, við órökstuddar fullyrðingar fréttamannsins. Og ekki er þetta traustvekjandi spegill inn í sálarlíf á fréttastofu. Eru þar kannski múlar og höft, ennþá, eftir hrunið og allar hrunskýrslurnar? Þjóðin á líka rétt á alvöru fréttafólki, ekki síður en öflugri stjórnsýslu og stjórnmálamönnum. Fólki sem hvorki lætur múlbinda sig né reynir að múlbinda annað fólk. Það þarf að vera hluti af bjartari framtíð,“ sagði Ögmundur.

