Viðskipti Fimmtudagur - 2.9 2010 - 22:45 - Ummæli ()

Ögmundur vill fara varlega í að veita lögreglu auknar rannsóknarheimildir

Auknar rannsóknarheimildir lögreglu eru Ögmundi ekki að skapi, en hann hefur þó mildast í orðavali.

Ögmundur Jónasson, nýskipaður dómsmálaráðherra, vill fara varlega í að veit lögreglu rannsóknarheimildir án þess að rökstuddur grunur liggur fyrir. Hann tekur þó ekki eins afdráttarlaust til orða gegn slíkum heimildum og hann gerði þegar hann var í stjórnarandstöðu.

Undanfarnar vikur hefur Ragna Árnadóttir, fráfarandi dómsmálaráðherra, talað fyrir því að lögregla fái forvirkar rannsóknarheimildir þannig að ekki þarf að vera hendi rökstuddur grunur um afbrot til að lögregla geti hafið rannsókn.

Ögmundur gagnrýndi þessi áform forvera síns um miðjan ágústmánuð, einosg Eyjan sagði frá. Það gerði flokksbróðir hans, Árni Þór Sigurðsson, líka.

Ögmundur fór þó varlega í yfirlýsingar þegar hann var spurður út í þessi mál í Kastljósinu í kvöld:

„Það sem hún (Ragna) hefur verið að horfa á er hvað við þurfum að gera til að stemma stigu við glæpastarfsemi hér því ekkert okkar vill að alvarlegir glæpir og glæpahópar nái að skjóta rótum í okkar samfélagi. Ég er algjörlega sammála um þetta, að sjálfsögðu. En þegar kemur að þessum forvirku aðgerðum er ég mjög varfærinn.“

Ögmundur var þó mun harðari í afstöðu sinni áður en VG komst í ríkisstjórn. Í sjónvarpsfréttum 3. júní 2008 sagði hann:

„Ég spyr: Viljum við lög eins og þau sem Svíar voru að samþykkja núna um daginn? Sem að heimila leyniþjónustunni sænsku að fylgjast með öllum sms sendingum þínum, öllum rafpósti þínum, öllum símtölum þínum án slíkra heimilda. Ég segi nei. Ég vil ekki búa í slíku eftirlitsríki.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar