Ríkisstjórnin boðar til þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið í sjávarútvegi ef ekki næst samkomulag um framtíðarskipan þess í þeim farvegi sem það er núna. Nefnd skipuð fulltrúum ríkisstjórnarinnar og hagsmunaaðila hefur undanfarna mánuði reynt að finna flöt á breytingum á kerfinu sem sátt getur tekist um. Hafa nokkrar vonir verið bundnar við að samkomulag geti tekist.
Yfirlýsing um þjóðaratkvæði er í tilkynningu sem ríkisstjórnin hefur sent frá sér í tengslum við breytingar á ráðherraskipan í morgun.
