Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðuneytið leiti samninga um leigu á hluta húsnæðis Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg undir starfsemi Landlæknis og Lýðheilsustöðvar. Unnið er að sameiningu embættanna tveggja og gert er ráð fyrir að hún verði að veruleika um áramótin.
„Heilsuverndarstöðin var byggð af miklum stórhug á sínum tíma og verður glæsileg umgjörð um nýja sameinaða stofnun,“ segir Álfheiður í fréttatilkynningu á vef ráðuneytisins. „Það hefur verið dapurlegt að horfa uppá þetta fallega hús standa ónotað í hjarta borgarinnar og ég er viss um að allir munu fagna því að Heilsuverndarstöðin lifni aftur. Nýja stofnunin kemur til með að nýta um helming húsnæðisins, þannig að með þessu má segja að fyrsta skrefið sé stigið. Í þessu góða húsi getur fleira rúmast, ég nefni sem dæmi hugmyndir um að nýja heilsugæslustöð Miðborgar og Hlíða sem ég vona að ég eigi eftir að sjá fara þar inn líka, því í þessu húsi á að vera heilbrigðisþjónusta.“
