Það þurfti ekki Guð almáttugan til að skapa heiminn. Náttúruöflin ein nægðu til að skapa líf í alheimi.
Þetta er niðurstaða hins heimkunna stjarneðlisfræðings, Stephens Hawking, í nýrri bók,The Grand Design, sem var að koma út.
Fram að þessu hefur Hawking ekki viljað útiloka að Guð hafi átt þátt í sköpun alheimsins eins og Biblían og fleiri trúarrit halda fram. En eftir stöðuga íhugun um efnið er það niðurstaða Hawking að Mikli hvellur svonefndi hafi verið óhjákvæmileg afleiðing náttúrulögmála. Ekki hafi þurft Guð til að skapa heiminn. Hann skapi sjálfan sig í raun og veru úr engu.
Víst er að ekki verða allir sammála þessari kenningu.
