Viðskipti Fimmtudagur - 2.9 2010 - 15:35 - Ummæli ()

Stjórnarandstaðan segir breytingar á ríkisstjórn sjónarspil, óðagot og stefnuleysi

Þór Saari gagnrýndi að þrátt fyrir að fyrir hefði legið að gengistryggð lán væru ólögleg og þúsundir heimila sætu þar með í skuldafangelsi hefðu ráðuneyti og stjórnsýslan ekkert gert.

Stjórnarandstaðan tekur ekki undir með leiðtogum ríkisstjórnarinnar, sem héldu því fram á Alþingi í dag að jákvæður viðsnúningur hefði orðið í efnahagsmálum Íslands.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að hvert sem litið væri blasti við stefnuleysi og ákvarðanafælni ríkisstjórnarinnar og að breytingar á ríkisstjórninni væri eitt sjónarspil. Á stjórnarheimilinu væri hver höndin upp á móti annarri og gerð væri úrslitatilraun til að þjappa sér saman um það sem ekkert er.

Bjarni tók þó undir að svörtustu spár um samdrátt og atvinnuleysi hefðu ekki gengið eftir. Það mætti einkum rekja til hagstæðra ytri skilyrða og ákvarðana fyrri ríkisstjórnar sem hefði tekið upp samstarf um efnahagsáætlun við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Bjarni sagði, að ríkisstjórnin væri afturhaldsstjórn enda væru allir ráðherrar nema einn úr gamla Alþýðubandalaginu. Það eina sem ríkisstjórnin byði upp á væri að setja á fót nýjar stofnanir og nýjar nefndir, en á sama tíma væri hún að fæla frá erlenda fjárfesta.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði nýja ríkisstjórn setta saman í óðagoti.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segir tilganginn með breytingum á ríkisstjórninni eingöngu vera að halda friðinn á stjórnarheimilinu. Þá rifjaði hann upp að nýverið hefði komið fram að hvorki ríkisstjórnin né stofnanir hefðu haft hagsmuni almennings að leiðarljósi þegar bankakerfið var endurskipulagt. Þvert á móti hefði verið beitt blekkingum og hefðu þær blekkingar ratað alla leið í þingsal Alþingis.

Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki, taldi það móðgun við atvinnulaust fólk og brottflutta Íslendinga að tala um að ríkisstjórnin stæði að atvinnustefnu. Einu atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar væri að finna í því að koma vinum sínum í embætti hjá ríkinu. En jafnvel það gangi illa, sagði hann.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar