Tölvupóstsamskipti milli helstu stjórnenda FL Group sýna að eignir sem settar voru inn í Northern Travel Holding í lok árs 2006 voru vísvitandi ofmetnar til að sýna fram á blekkjandi eignarstöðu á efnahagsreikningi þeirra félaga sem að viðskiptinum komu. Um 2000 hluthafar í FL Group, og lánardrottnar félagsins, töpuðu gríðarlegum fjármunum á þessari viðskiptafléttu. Viðskiptablaðið segir frá þessu í dag, en blaðið hefur undir höndum tölvupósta, kaupsamninga, viðskiptaáætlanir og fleiri gögn sem varpa ljósi á fléttuna.
Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir voru danska flugfélagið Sterling og Iceland Express. Stjórnendurnir lögðu einnig mikla áherslu á að viðskiptin myndu „meika sens út á við“, einsog það var orðað þeirra í milli.
Hannes Smárason, þá forstjóri FL Group, og Pálmi Haraldsson í Fons, gengu frá kaupum FL Group á danska flugfélaginu Sterling fyrir fimmtán milljarða króna árið 2006, en Pálmi hafði keypt flugfélagið á um fjóra milljarða króna um sjö mánuðum fyrr. Mikið tap var á rekstri Sterling og af tölvupóstsamskiptum milli stjórnenda FL group er ljóst að veruleg vandræði voru farin að fylgja því að hafa Sterling á efnahagsreikningi FL Group þegar líða fór á árið 2006 og erfitt að réttlæta fjárfestingu í félaginu fyrir fimmtán milljarða króna.
FL Group stofnaði þá félagið Northern Travel Holding og seldi hinu nýstofnaða félagi meðal annars Sterling flugfélagið og Iceland Express á yfirverði.
Á meðal stærstu eigenda FL Group voru þeir Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson í Fons, þannig að í raun voru eigendur félaganna einungis að færa verðmæti á milli vasa. Með þessu gátu þeir hækkað virði eignanna á efnahagsreikningi félaganna, þar sem þær virtust verðmætari en þær í raun voru, losað um reiðufé þar sem hluti kaupverðsins var greiddur út í hönd til Fons og FL group og losað Pálma undan sex milljarða króna skuld til FL Group, sem Pálmi hefði þurft að greiða ef FL Group hefði átt Sterling áramótin 2006/2007.
Á sama tíma losnaði FL Group undan öllum ábyrgðum vegna Sterling. Northern Travel Holding varð aldrei meira en skúffufyrirtæki í höfuðstöðvum Iceland Express fram að þroti þess með milljarða króna tapi um 2000 hluthafa FL Group og helstu lánadrottna félagsins, Glitnis og Landsbankans.
Viðskiptablaðið mun birta frekari fréttir af Northern Travel Holding viðskiptafléttum á næstu vikum. Gögn blaðsins voru afrituð í ítarlegri húsleit sem starfsmenn skattrannsóknarstjóra framkvæmdu í höfuðstöðvum FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoðir, þann 11. nóvember 2008. Þar var lagt hald á ýmiskonar bókhaldsgögn, kaupsamninga, viðskiptaáætlanir, samkomulög og aragrúi tölvupóstsamskipta afrituð.

