Ekki hefur verið hægt að komast inn á vefsíðu DV í morgun. Þegar slegið er inn dv.is kemur upp villuboðun einsog sést á þessari mynd og er því haldið fram að tölvuþrjótar hafi ráðist á síðuna.
Fram kemur í villuboðinu að árásarsíður sem þessar reyni að stela persónulegum upplýsingum, jafnvel nota upplýsingar úr tölvum notenda síðunnar. Þá geti sumir tölvuþrjótar reynt að dreifa vírusum í gegnum síður annarra.
Unnið hefur verið að því í nokkrar klukkustundir að vinna bug á vandanum, en það hefur enn ekki tekist.

