Forsprakki ECA segir fyrirtækið reiðubúið að verja einum og hálfum milljarði dollara í kaup á fimmtán Sukhoi Su-27 “Flanker” orrustuþotum frá Hvíta-Rússlandi í því skyni að nota þær sem æfingavélar frá Keflavíkurflugvelli. Auk þess er fyrirtækið reiðubúið að bæta átján flugvélum við, gangi áætlanir eftir.
Mikill vandræðagangur hefur verið í ríkisstjórninni vegna beiðni ECA Program að fá aðstöðu á Íslandi til að sinna hernaðaræfingum ýmissa ríkja. Enda þótt málið hafi nú verið á borði stjórnvalda í töluverðan tíma er enn margt á huldu um starfsemi ECA, líkt og Financial Times sagði frá í vikunni.
Melville ten Cate, stofnandi ECA segir við Financial Times að þegar hafi verið samið við ríkisstjórnir fimm landa, sem vilji nota aðstöðuna á Íslandi og þoturnar sem eftirmynd óvinaflugvéla í stríði. Hann segir að fyrirhugaðar æfingar muni ekki fara fram í lofthelgi Íslands, heldur verði Keflavíkurflugvöllur aðeins notaður sem bækistöð.
„Við erum einsog bílalega fyrir þjálfun í hernaði heimsins,“ segir hann.
Gangi það eftir verður þetta stærsta sala á orrustuþotum til einkaaðila sem dæmi eru um og í raun í fyrsta skipti sem herflugvélar frá Rússlandi verða notaðar í Nato-ríkjum.
Í frétt FT kemur fram að erfitt sé að fá staðfest frá framleiðendum vélanna hvort samningurinn gangi eftir. BelTechExport í Hvíta-Rússlandi staðfesti hana upphaflega við blaðið, en dró það svo til baka á mánudaginn var. Rússneski vopnaframleiðandinn Rosoboronexport segist enga aðild eiga að slíkri sölu. Melville ten Cate segir við blaðið að vélarnar sem ECA kaupi séu upphaflega framleiddar í Rússlandi, en síðan uppfærðar frekar í Hvíta-Rússlandi.
Þá segir hann fjármögnun verkefnisins m.a. koma frá fjárfestum í Mið-Austurlöndum og Asíu.
Í Speglinum í kvöld kom fram að Melville ten Cate hafi fengið dóm í Frakklandi árið 2006 sem banni honum að stunda atvinnustarfsemi þar í landi í sjö ár.

