Viðræðum samninganefnda Íslands, Hollands og Bretlands lauk án sýnilegs árangurs í Haag nú fyrir kvöldið. Nefndirnar sátu þar á samningafundum í gær og í dag, en samkvæmt heimildum Eyjunnar þokaðist lítið áfram að þessu sinni og er framhaldið í nokkurri óvissu.
Þar með má segja að Icesave-deilan sé enn í sama hnút og áður.
Reuters fréttastofan hafði eftir talsmanni hollenska fjármálaráðuneytisins í gær að Hollendingar væru reiðubúnir til að semja um „sanngjarna lausn“ (e. reasonable). Hann bætti því jafnframt við að Íslendingar hefðu sagt hið sama.
Miðað við lyktir fundanna í dag virðist sem þjóðirnar leggi mismunandi skilning í það hvað telst sanngjörn lausn. Eftirlitsstofnun EFTA sagði í maí síðastliðnum að Íslendingum bæri að ábyrgjast 20 þúsund evra lágmarkstryggingu á Icesave-reikningunum.
Fjármálaráðuneytið hérlendis segir fundina hafa reynst „gagnlegir en ekkert hefur verið afráðið um frekari fundahöld að svo stöddu.“
Reuters fréttastofan vekur athygli á því að samningafundirnir eru enn á embættismannastigi, en hafa enn ekki verið teknir á hærra, pólitískt, stig.
