Föstudagur - 3.9 2010 - 21:21 - Ummæli ()

Íslendingar náðu forystu gegn Norðmönnum en misstu niður í tap

Stuðningur áhorfenda á Laugardalsvelli dugi ekki til í kvöld.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta byrjar undankeppni Evrópumótsins jafn illa og því gekk í undankeppni síðustu heimsmeistarakeppni. Fyrsta leik liðsins lauk með 1:2 tapi gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli í kvöld.

Íslendingar hófu leikinn reyndar vel og voru 1:0 yfir í leikhléi. Heiðar Helguson skoraði markið á 38. mínútu, hans ellefta mark í 50 A-landsleikjum. Brede Hangeland jafnaði svo leikinn og Mohammed Abdellaoue skoraði sigurmark Norðmanna.

Kýpur náði jafntefli við Portúgal

Í riðli Íslendinga náðu Kýpurbúar jafntefli gegn Portúgölum á útivelli í miklum markaleik, 4:4. Kýpur jafnaði leikinn einni mínútu fyrir leikslok.

Nýkrýndir heimsmeistarar Spánar unnu öruggan sigur á Liechtenstein á útivelli, 0:4. Fernando Torres skoraði tvö og þeir David Villa og David Silva sitt markið hvor.

Englendingar fóru létt með Búlgari á Wembley í kvöld, 4:0, og skoraði Jermain Defoe þar hat-trick, eða þrennu.

Frakkar byrja illa undir stjórn Laurent Blancs, en þeir töpuðu fyrir Hvít-Rússum á heimavelli, 0:1.

Öll úrslit kvöldsins má sjá á vef UEFA.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar