Föstudagur - 3.9 2010 - 16:00 - Ummæli ()

Nicole tekur tólf spora aðferðina alvarlega: Segist bera fulla ábyrgð á fortíðinni

Þokkadísin og tískuprinsessan Nicole Richie segist bera fulla ábyrgð á sínum fyrri mistökum og að hún geti engum kennt um nema sjálfri sér.

Í viðtali við InStyle segir hún fortíð sína ekki hafa neitt að gera með foreldrana eða uppeldið en Nicole var í fíkniefnum og áfengi áður en hún eignaðist tvö börn og róaðist niður með kærastanum, Joel Madden.

„Því er nú þannig farið með mig að ég hef alltaf tekið fulla ábyrgð á öllu sem ég geri, hvort sem það er gott eða slæmt,“ segir Nicole og vísar þannig í tólf spora kerfið sem gengur út á að fíkillinn leiti ekki orsaka annarsstaðar en í eigin vali.

„Fólk hefur spurt mig hvort ég kenni Hollywood eða foreldrum mínum um hvernig ég hegðaði mér á yngri árum en staðreyndin er sú að jafnvel þegar ég gekk í gegnum erfiða tíma þá voru það aðstæður sem ég hafði sjálf skapað mér.“

Nú hefur Nicole, með aðstoð góðra vina, komið sér út úr ruglinu og leggur aðal áhersluna á að vera góð móðir þeirra Sparrow og Harlow sem eru eins og tveggja ára.

Hinn rúmlega sextugi Lionel Richie, faðir Nicole, tjáði sig líka nýlega í viðtali þar sem hann sagðist stoltur af árangri dóttur sinnar og hvernig henni hafi tekist að snúa blaðinu við.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar