Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, vill að Julian Assange, stofnandi og forvígismaður WikiLeaks-vefsíðunnar, stígi til hliðar meðan ásakanir á hendur honum um nauðgun í Svíþjóð eru rannsakaðar til hlítar.
Bandaríska dagblaðið New York Post segir frá þessu í dag.
Blaðið segir að Birgitta styðji starfsemi WikiLeaks en vilji að einhver annar stýri meðan rannsókn stendur yfir. Sjálfur hefur Assange þvertekið fyrir að víkja og hafnar öllum ásökunum um kynferðisbrot.
Fram hefur komið að ríkissaksóknari í Svíþjóð hóf að nýju rannsókn málsins í vikunni.
Greint hefur verið frá því að von sé á miklum fjölda skjala um stríðið í Afganistan á síðu WikiLeaks á næstunni.
