Laugardagur - 4.9 2010 - 13:24 - Ummæli ()

Bjarni Ben: Efast um tilgang þess að halda viðræðum um Icesave áfram

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist efast um tilgang þess að halda áfram viðræðum um Icesave við Breta og Hollendinga. Lítið sem ekkert virðist hafa þokast í samkomulagsátt á fundi samninganefnda um Icesave deiluna sem lauk í gær. Kom íslenska
samninganefndinheim seint í gærkvöldi, eftir tveggja daga fund í London.

Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV í dag.

RÚV vitnaði í stutta fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins þar sem sagði að fundirnir hefðu verið gagnlegir, en ekkert hafi verið afráðið um framhald þeirra.

Rætt var við Bjarni Benediktsson sem sagði ljóst að afrakstur þessarar lotu hefði verið rýr, og það benti til þess að lítið hafi þokast í átt að samkomulagi.

Bjarni sagði við RÚV að hann efaðist um gagnsemi þess að halda viðræðunum áfram. Líkur séu á því að nú stefni málið í formlegan farveg og endi fyrir dómstólum, sem þurfi ekki að vera slæmt. Fram kom í fréttinni að partur af þeirri málsmeðferð fer í gegnum ESA, sem er eftirlitsstofnun EFTA. Sú stofnun sendi íslenskum stjórnvöldum bréf fyrr á þessu ári, þar sem það álit kom fram að íslenska ríkið bæri ábyrgð á Icesave innistæðum landsbankans. Stjórnvöld hér undirbúa nú svar við þessu áliti, og það svar verður sent innan nokkurra daga.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar