Laugardagur - 4.9 2010 - 10:04 - Ummæli ()

Dómsmálaráðuneytið bað um styrk frá ESB. Dregur Ögmundur umsóknina til baka?

Spurningar hafa vaknað um það hvort dómsmálaráðuneytið muni afturkalla beiðni um svokallaðan IPA-styrk frá Brussel, sem ætlaður er til að undirbúa stjórnkerfið undir aðild að Evrópusambandinu, nú þegar Ögmundur Jónasson er sestur í stól dómsmálaráðherra. Umsóknin mun hafa verið send til forsætisráðuneytisins, sem hefur milligöngu í málinu, meðan Ragna Árnadóttir var ráðherra.

Á vef Evrópuvaktarinnar segir að meðal þeirra ráðuneyta sem ekki hafa sótt um slíkan styrk séu heilbrigðisráðuneytið í tíð Álfheiðar Ingadóttur og landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið sem Jón Bjarnason stýrir. Evrópuvaktin segir að ætla megi hins vegar að dómsmálaráðuneytið hafi sótt um slíkan styrk í tíð Rögnu Árnadóttur.

Stutt er síðan Ögmundur lýsti yfir stuðningi við ákvörðun Jóns Bjarnasonar að þiggja ekki styrki til ráðuneyta sinna frá Evrópusambandinu,

Evrópuvaktin spyr hvort Ögmundur Jónasson muni beita sér fyrir því, að slíkar tillögur dómsmálaráðuneytisins verði dregnar til baka. Hvort slíkt verði gert gefi töluverða vísbendingu um, „hvort Ögmundur muni standa við stóru orðin í sambandi við ESB-umsóknina eftir að hann er kominn í ríkisstjórn á ný.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar