Eva Joly fundaði með 24 nýjum starfsmönnum sérstaks saksóknara bankahrunsins í gær og gerði þeim grein fyrir því starfi sem framundan er. Hún hættir störfum sem ráðgjafi saksóknara um næstu áramót og einbeitir sér að kosningabaráttunni í Frakklandi þar sem hún er í forsetaframboði. Joly hefur starfað með sérstökum saksóknara frá því í mars 2009.
Þetta kemur fram í viðtali við Joly í Sunnudagsmogganum.
Joly kveðst ekki vilja tjá sig um gang rannsóknar bankahrunsins. Hún kveðst þó ánægð með uppbyggingu starfsliðsins. Hún segir að menn hafi smám saman áttað sig á ferli þeirra afbrota sem framin voru hér á landi í aðdraganda bankahrunsins. Hlutirnir séu mun skýrari nú en þeir voru í upphafi.
Eva Joly er spurð um gagnrýni á hana í nýlegu blaðaviðtali við Sigurð Einarsson, en hann kvartaði yfir yfirgangi og valdníðslu. Joly sagði að ummæli af þessu tagi væri í samræmi við það sem hún og aðrir rannsakendur stórra efnahagsbrota hefðu alla tíð þurft að búa við. Þau væru fyrirsjáanleg.
„Þeir sem eru í hárri stöðu í samfélaginu og eiga peninga eru ekki vanir að þurfa að svara spurningum. Þeir eru með góða lögfræðinga sem kunna öll brögðin,“ sagði hún.
Í viðtalinu segir Joly að hugarfar þeirra sem fremja efnahagsbrot sé af allt öðrum toga en hjá hefðbundnum glælpamönnum. „Þjófar og bankaræningjar vita að þeir eru í leik þar sem þeir brjóta reglur samfélagsins,“ segir hún. „Þegar þeir nást vita þeir að það er hluti af áhættunni sem þeir taka. Þeir sem fremja efnahagsbrot eru svo vanir að halda að þeir séu hafnir yfir lögin að þeim finnst og þeir trúa að þeir hafi bara verið að gera það sem allir séu að gera; að það sé ósanngjarnt að þeir þurfi að svara til saka en ekki kollegar þeirra í London eða Bandaríkjunum.“
Í leiðara Sunnudagsmoggans segir að Eva Joly hafi haft afgerandi áhrif á það hvernig að rannsókninni á bankahruninu hafi verið staðið. Óhætt sé að fullyrða að embætti sérstaks saksóknara hefði orðið mun máttlausara og kraftminna hefði hún ekki sett fram skýra sýn á það hvernig ætti að haga málum.
