Laugardagur - 4.9 2010 - 15:02 - Ummæli ()

Sjálfstæðismenn vilja að fjölmiðlafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur verði dregið til baka

Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Óli Björn Kárason og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, vilja að fjölmiðlafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra verði dregið til baka og vinna þess í stað hafin við heildstæða rammalöggjöf þar sem meðal annars verði tekið á samkeppnismálum einkarekinna fjölmiðla og Ríkisútvarpsins.

Þetta kemur fram í nefndaráliti þeirra um frumvarpið á Alþingi.

Óli Björn og Ragnheiður segja að öll rök hnígi að því að tryggja eðlilega og sanngjarna samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Engin tilraun sé gerð í frumvarpinu til að jafna samkeppnisstöðu fjölmiðla og fremur sé þrengt að starfsemi þeirra. Gera verði alvarlega athugasemd við að lagt sé fram frumvarp til laga um rammalöggjöf um fjölmiðla án þess að með nokkrum hætti sé tekið á málefnum Ríkisútvarpsins. Verði frumvarpið að lögum verði til enn ein eftirlitsstofnun hins opinbera, Fjölmiðlastofa, sem eigi að sinna eftirlitshlutverki sem aðrar opinberar stofnanir hafi þegar með höndum. Þá sé ljóst að stór hluti frumvarpsins eigi betur heima í öðrum lögum.

Þingmennirnir vilja að lög um Ríkisútvarpið verði jafnframt endurskoðuð frá grunni með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði og koma á heilbrigðri samkeppni. Jafnframt sé nauðsynlegt að huga að því hvort ekki sé skynsamlegra að binda reglur um hljóð- og myndmiðla, samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins, í lög með breytingum á lögum um fjarskipti, fremur en í rammalög um fjölmiðla.

Þá segja Óli Björn og Ragnheiður að löggjafinn þurfi að marka skýra stefnu er varðar eignarhald á fjölmiðlum og tryggja gegnsæi í þeim efnum. Reglur um eignarhald fjölmiðla verði ekki settar án þess að tryggt verði að eðlileg og sanngjörn samkeppni ríki á fjölmiðlamarkaði. Í þessu sambandi verði að huga að breytingum á samkeppnislögum sem miða meðal annars að því að markaðsráðandi fyrirtæki á öðrum sviðum geti ekki misnotað stöðu sína með því að beina viðskiptum sínum aðeins til eins fjölmiðils, óháð eðlilegum viðskiptalegum sjónarmiðum. Slíkt skekki samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði og dragi um leið úr sjálfstæði þess fjölmiðils sem njóti auglýsingatekna frá viðkomandi aðila.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar