Laugardagur - 4.9 2010 - 12:01 - Ummæli ()

Jóhanna: Ný Þjóðhags-stofnun til skoðunar á vegum ríkisstjórnar- innar

Stofnun nýrrar Þjóðhagsstofnunar er ein þeirra hugmynda sem ríkisstjórnin hefur til skoðunar í því skyni að bæta stjórnsýsluna.

Jóhanna Sigurðardóttir skýrði frá þessu í ræðu á Alþingi fyrir helgi.

Ekki hefur þó verið kveðið afdráttarlaust upp úr um það að stofnunin verði endurreist. Ákveðið var að leggja hana niður árið 2001 og færa verkefnin til Hagstofunnar og ráðuneyta. Gjarnan er fullyrt að þessa ákvörðun hafi Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, tekið einn vegna óánægju með að efnahagsspár stofnunarinnar væru ekki nægilega í samræmi við þá mynd af stöðu efnahagsmála sem ríkisstjórnin drægi upp.

Skopteikning Sigmunds sem fylgir var birt í Morgunblaðinu þegar tilkynnt var um ákvörðunina sem kom flatt upp á starfsmenn Þjóðhagsstofnunar. Myndina má skoða betur á vefsíðu Sigmunds á netinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar