Laugardagur - 4.9 2010 - 18:30 - Ummæli ()

Morðmálið upplýst. Gunnar Rúnar viðurkennir að hafa banað Hannesi Þór

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, 23 ára Hafnfirðingur, hefur játað fyrir lögreglu að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana þann 15. ágúst síðastliðinn. Hann var einn að verki. Málið telst upplýst.

Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu efndi til síðdegis.

Morðvopnið er ekki fundið en þess er leitað í Hafnarfjarðarhöfn eftir ábendingu Gunnars Rúnars. Hann verður látinn sæta geðrannsókn næstu daga.


Facebook síða Twitter síða RSS straumar