
Hrannar segir það "rugl" og "samsæriskenningu" hjá Kristrúnu að halda því fram að til hafi staðið að gera Svavar að aðalsamningamanni gagnvart ESB, enda málið komið á dagskrá löngu síðar.
Aðstoðarmaður forsætisráðherra segir það fjarstæðu að halda því fram að til hafi staðið að gera Svavar Gestsson að aðalsamningamanni Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Kristrún Heimisdóttir, sem var aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í utanríkisráðuneytinu, hélt þessu fram á fundi í Samfylkingunni í gær. Jón Baldvin Hannibalsson var þar aðalræðumaður og gagnrýndi hann valið á Svavari sem formanni Icesave-nefndarinnar hinnar fyrstu, vorið 2009. Jón Baldvin sagði:
„Hvaðan úr veröldinni kom Steingrími J. Sigfússyni, þeim ágæta manni, það í hug að setja Svavar Gestsson yfir þessa nefnd? Það er engin skýring til á því nema að hann hafi átt að gæta að órólegu deildinni hjá VG, Kattadeildinni – sem hann auðvitað gat ekki. Þetta voru skelfileg mistök. Auðvitað áttum við að leita strax eftir erlendum fjármálasérfræðingi til að leiða þessa nefnd. Auðvitað áttum við að virkja lögspekinga frá íhaldinu, strax, með sínar lögskýringar. Þetta voru mistök sem draga langan dilk á eftir sér.“
Kristrún tók þá til máls og ástæðu þess að Svavar var settur yfir Icesave-nefndina hafi verið „sú að þeir sem sömdu stjórnarsáttmálann fyrir okkur í vinstri stjórninni í ársbyrjun 2009 voru nánast búnir að samþykkja að hann yrði aðalsamningamaður um Evrópusambandið. Í staðinn þá varð hann samningamaður í Icesave málinu,“sagði hún.
Hrannar: Rugl í Kristrúnu. Samsæriskenning sem stenst ekki skoðun
Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, gerir frétt Eyjunnar frá því fyrr í dag að umtalsefni á facebook-síðu sinni í kvöld. Vísar hann þessari kenningu Kristrúnar frá sem „samsæriskenningu“ og bendir á að þegar minnihlutastjórn flokkanna tók við um mánaðamótin janúar/febrúar 2009, hafi ESB-umsókn ekki verið komin á dagskrá og því fráleitt hægt að leita að samningamönnum fyrir slíka nefnd.
„Óskaplegt rugl er þetta í Kristrúnu – umsókn um ESB var ekki einusinni komin á dagskrá í tíð minnihlutastjórnarinnar, hvað þá farið að leita að samningamönnum. Samsæriskenningarnar og ruglið ríður ekki við einteyming!“ – skrifar Hrannar Björn.
