Sunnudagur - 5.9 2010 - 13:03 - Ummæli ()

Arion banki réttlætir kyrrstöðusamninga. Segist vera að verja hagsmuni sína

Arion banki segist vera að verja fjárhagslega hagsmuni sína með því að gera kyrrstöðusamninga við einstaka skuldara. Bankinn hafi á undanförnum mánuðum fryst lán fjölda skuldara, einstaklinga sem fyrirtækja, í þeirri von að það muni auðvelda innheimtu skuldanna.

Bankinn hafnar því að gerð kyrrstöðusamninga feli í sér sérkjör fyrir einstaka skuldara. Bent er á að þó að einn kröfuhafi geri kyrrstöðusamning við skuldara hafi það ekki áhrif á aðgerðir annarra lánardrottna viðkomandi.

Bankinn hefur óskað eftir fundi með Umboðsmanni skuldara vegna ummæla í sjónvarpi um þetta mál í gærkvöldi.

Yfirlýsing Arion banka í heild:

Að gefnu tilefni vill Arion banki árétta eftirfarandi um kyrrstöðusamning (e. stand still agreement) við eignarhaldsfélagið Gaum:

• bankinn leitar allra leiða til að tryggja hagsmuni sína sem kröfuhafa í þessu máli sem öðrum
• kyrrstöðusamningar eru í ákveðnum tilvikum leið til verja slíka hagsmuni og eru í eðli sínu tímabundin frysting lána meðan unnið er að greiningu og úrlausn vandans
• Arion banki hefur tímabundið fryst lán hjá hundruðum viðskiptavina sinna, einstaklingum sem fyrirtækjum, á undanförnum mánuðum
• í öllum þessum tilvikum væntir bankinn þess að eitthvað það gerist áður en fresturinn er úti sem verði til þess að bankinn sjái hagsmunum sínum betur borgið sem kröfuhafi
• kyrrstöðusamningar eru gerðir til nokkurra daga, vikna eða til lengri tíma
• fjöldi kyrrstöðusamninga hefur verið gerður hér á landi síðustu misserin þar sem ýmist einn kröfuhafi eða fleiri saman gefa skuldurum færi á að endurskipuleggja fjármál sín
• öll umræða um að kyrrstöðusamningur feli í sér sérkjör fyrir útvalda er því villandi
• aðgerðir í einstökum málum eru háðar mati í hverju tilfelli með hagsmuni bankans að leiðarljósi
• þó að einn kröfuhafi geri kyrrstöðusamning við skuldara, hefur það ekki áhrif á fullnustuaðgerðir annarra kröfuhafa
• í ljósi ummæla Umboðsmanns skuldara mun bankinn óska eftir fundi með embættinu


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar