Svavar Gestsson var næstum því orðinn aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum um Evrópusambandið, en leiddi í staðinn fyrstu lotu Icesave-viðræðnanna. Þetta var upplýst á fundi Samfylkingarfólks í gær.
Fram kemur að Jón Baldvin Hannibalsson hafi verið aðalræðumaður á fundinum. Hann hafi meðal annars rætt um Icesave málið, sem hann sagði alfarið á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins og stakk upp á að reikningurinn yrði sendur í Valhöll. Hann beindi þó einnig sjónum sínum að viðbrögðum þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr.
„Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur reynt að fara samningaleið í þessu máli í framhaldi af því sem fyrri ríkisstjórn var búin að skuldbinda sig til, en tekist alveg með endemum óhönduglega,“ er haft eftir Jóni Baldvini á Vísi.
Enn er vitnað í Jón Baldvin: „Hvaðan úr veröldinni kom Steingrími J. Sigfússyni, þeim ágæta manni, það í hug að setja Svavar Gestsson yfir þessa nefnd? Það er engin skýring til á því nema að hann hafi átt að gæta að órólegu deildinni hjá VG, Kattadeildinni – sem hann auðvitað gat ekki. Þetta voru skelfileg mistök. Auðvitað áttum við að leita strax eftir erlendum fjármálasérfræðingi til að leiða þessa nefnd. Auðvitað áttum við að virkja lögspekinga frá íhaldinu, strax, með sínar lögskýringar. Þetta voru mistök sem draga langan dilk á eftir sér.“
Vísir segir að Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, hafi tekið til máls á fundinum næst á eftir Jóni, og tjáð sig um aðkomu Svavars að málinu. „Ég held að ástæðan fyrir því að Svavar Gestsson var formaður samninganefndar um Icesave málið sé sú að þeir sem sömdu stjórnarsáttmálann fyrir okkur í vinstri stjórninni í ársbyrjun 2009 voru nánast búnir að samþykkja að hann yrði aðalsamningamaður um Evrópusambandið,“ sagði Kristrún. „Í staðinn þá varð hann samningamaður í Icesave málinu. Og það er vegna þess að menn eru svo óskaplega mikið að gefa eftir stöðuna um þessa grundvallarhagsmuni, eins og menn hafa gert í Icesave málinu og ESB-málinu – þeir víkja og við náum ekki þeim árangri sem við ættum að ná.“
