Sunnudagur - 5.9 2010 - 10:02 - Ummæli ()

Guðbjartur: Sársauka- fullur niðurskurður framundan. Skraut- stofnanir lagðar niður

Guðbjartur Hannesson boðar sársaukafullan niðurskurð í fjárlagafrumvarpinu sem væntanlegt er í byrjun október. Guðbjartur sem nú er heilbrigðis- og félagsmálaráðherra hefur gegnt formennsku í fjárlaganefnd Alþingis undanfarin misseri.

Þetta kemur fram í viðtali við Guðbjart í Fréttablaðinu.

Guðbjartur segir að við niðurskurðinn sem framundan sé muni viðkvæmum málaflokkum öryrkja og fatlaðra og atvinnuleysingja verða hlíft eins og gert hafi verið við afgreiðslu fjárlaga þessa árs. Hann segir að of snemmt sé að greina frá því hvar borið verði niður, en upplýsir að 9% niðurskurður verði hjá heilbrigðisráðuneytinu og yfirstjórn þess, en 5% í sjálfum heilbrigðis- og félagsmálunum. Þeim niðurskurði verði ekki deilt jafnt niður á allar stofnanir.

Í viðtalinu leggur Guðbjartur áherslu á nýja forgangsröðun verkefna hjá ríkinu. Hann talar um óþarfar skrautstofnanir ríkisins í því sambandi en vill ekki greina nánar frá því hvaða stofnanir það eru. „Við höfum verið dugleg að eyða og það er hægt að finna ýmsar stofnanir sem getur verið gaman að eiga en þarf að reka með eins hagkvæmum hætti og unnt er, eins og í menningarmálum
og jafnvel í öllum geirum. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn því að það er viðkvæmt, en í rauninni
þurfum við að hugsa upp á nýtt fyrir hvað ríkið á að standa.“

Guðbjartur segir að Íslendingar eigi nógan pening, séu rík þjóð og eigi að geta haldið úti mjög góðri þjónustu. „En það þýðir að við þurfum að skafa af henni það sem við þurfum ekki að bera ábyrgð á sem ríki,“ segir hann í Fréttablaðinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar