Ögmundur Jónasson dómsmála- og samgönguráðherra styður áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, en vill að rætt verði alvarlega um það hvort viðræðurnar séu að snúast yfir í aðlögunarferli. Því kvaðst hann andvígur og sagðist sammála Jóni Bjarnasyni í því efni. Hann kvaðst andvígari aðild að ESB en nokkru sinni áður.
Þetta kom fram í þættinum Silfri Egils þar sem Ögmundur var meðal viðmælenda Egils Helgasonar.
„Við erum ekkert að fara að aðlaga okkur að Evrópusambandinu“, sagði Ögmundur, þegar hann var spurður hvort ráðuneyti hans mundu þiggja fé frá sambandinu í tengslum við viðræðurnar. Hann sagðist hafa beðið ráðuneytisstjóra sinn að taka saman upplýsingar um þær greiðslur frá Brussel sem ráðuneytinu stæðu til boða.
Fram kom að Ögmundur átti fund með Evu Joly í fyrrakvöld. Hún hættir sem ráðgjafi sérstaks saksóknara um næstu áramót. Ögmundur lauk lofsorði á störf hennar, en sagði að hann teldi að embætti sérstaks saksóknara hefði nægan styrk til að halda rannsókn efnahagsbrotanna áfram þótt Joly gæti ekki lagt því frekari lið.
Rætt var um mál níumenninganna sem nú sæta ákæru fyrir árás á Alþingi í búsáhaldabyltingunni. Ögmundur ítrekaði að sú skoðun sín væri óbreytt að Alþingi hefði ekki átt að vísa máli þeirra til saksóknara. Hann hefði hins vegar ekki stöðu til að grípa inn í málið þegar það væri komið fyrir dómstóla.
Þá bar forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu á góma. Ögmundur kvaðst mjög íhaldssamur í því efni og taldi hættur geta fylgt því að veita slíkar heimildir. Hins vegar yrði að vera á varðbergi gegn ítökum glæpasamtaka í íslensku samfélagi og rétt að skoða allar leiðir til þess.
