Sunnudagur - 5.9 2010 - 12:20 - Ummæli ()

Þingmannanefnd um hrunið fundar daglega. Búist við niðurstöðu fljótlega

Þingmannanefnd undir forystu Atla Gíslasonar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hefur fundað daglega að undanförnu. Engar fundargerðir hafa hins vegar verið birtar á vef Alþingis síðan 27. ágúst. Búist er við því að nefndin kveði fljótlega upp úr um það hvort ástæða sé til að kalla Landsdóm saman í fyrsta sinn og höfða mál á hendur fyrrverandi ráðherrum vegna ábyrgðar þeirra á bankahruninu haustið 2008. Skýrsla nefndarinnar mun vera tilbúin í meginatriðum.

Fundur hefur verið boðaður í nefndinni í fyrramálið. Af dagskránni er ekkert hægt að ráða um stöðu málsins. Nefndarmenn eru þögulir sem gröfin.

Fjöldi sérfræðinga hefur að undanförnu verið kallaður á fund nefndairnnar. Fram kemur í fundargerð frá 27. ágúst að hún m.a. hafi fengið tvo sérfræðinga á sviði fjármála, Ragnar Önundarson og Aðalstein Jónasson, til að lesa yfir skýrsludrögin.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar