Mánudagur - 6.9 2010 - 06:17 - Ummæli ()

Arion banki: Ekki upplýst hve lengi kyrrstöðusamningur við Gaum gildir

Bankastjóri Arion banka segir frekar langsótt að Gaumur, fjárfestingafélag Baugsfjölskyldunnar, eigi fyrir öllum sínum skuldum. Með kyrrstöðusamningi um skuldir félagsins sé bankinn að reyna að hámarka innheimtu skuldarinnar, óháð því hve stór sá hlutur verður.

Þetta kemur fram í viðtali við Höskuld H. Ólafsson í Morgunblaðinu í dag.

Bankastjórinn gefur ekki upp til hve langs tíma kyrrstöðusamningurinn við Gaum gildir.

Blaðið segir að kyrrstöðusamningurinn feli í sér að vaxtagreiðslur af skuld Gaums séu frystar á meðan bankinn aflar upplýsinga um stöðu félagsins. Fram kemur að bankastjórinn vísar gagnrýni á samninginn á bug og segir hann í takt við meðferð á skuldum heimila. Gaumur fái enga sérmeðferð í bankanum. Hvað snertir önnur atriði samningsins kveðst hann ekki hafa heimild til að sjá sig um efnisatriði á þessu stigi.

Fram hefur komið að Umboðsmaður skuldara hefur óskað eftir upplýsingum um samninginn.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar