
Bjarni segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi þegar horfst í augu við mistök sín, í kosningum í fyrra og með útgáfu rannsóknarskýrslunnar.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að fjölmargt hafi farið úrskeðis hjá Sjálfstæðisflokknum í valdatíð hans fyrir hrun. Nefnir hann sérstaklega einkavæðingu bankanna og eftirlit með bönkunum eftir að þeir voru einkavæddir. Hann segir mikilvægt að flokkurinn horfist í augu við mistökin og viðurkenni þau.
Í viðtali á Rás 2 í dag sagði hann Sjálfstæðisflokkinn ekki skorast undan ábyrgð eða uppgjöri við mistök fortíðarinnar.
„Hann hefur þurft að gera upp í kosningum árið 2009 og hann hefur þurft að horfast í augu við niðurstöður Rannsóknarskýrslnnar. Það er fjölmargt sem fór úrskeðis og afvega á meðan við vorum að stýra þessu landi. Við þurfum að horfast í augu við það og viðurkenna. Peningarnir tóku völdin. Við misstum stjórn á ferlinu í tengslum við einkavæðingu bankanna, eftirlit með bankastarfseminni var síðan algerlega ófullnægjandi. Það er fjölmargt fleira sem hægt er að tína til sem Sjálfstæðisflokkurinn verður að horfast í augu við og viðurkenna og það hef ég viljað gera,“ sagði hann.
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku sér leyfi frá þingstörfum eftir að Rannsóknarskýrsla Alþingis kom út. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur boðað endurkomu sína á haustþingi og Illugi Gunnarsson segist bíða niðurstöðu sérstaks saksóknara í málum er varða stjórnarsetu hans í Sjóði 9 hjá Glitni.
Bjarni segir mikilvægt að þingmenn skýri mál sín, en þeir sæki þó ekki umboð sitt til formanns flokksins.
„Varðandi málefni einstakra þingmanna, þá hef ég sagt að þeir þyrftu að vera tilbúnir að veita svör og gefa skýringar. Síðan er það svo að þeir sækja ekki umboð sitt til mín sem formanns, heldur þurfa að endurnýja umboð sitt reglulega í gegnum kosningar.“
