Mánudagur - 6.9 2010 - 06:28 - Ummæli ()

Forseti ASÍ deilir hart á Seðlabankann fyrir að standa gegn styrkingu krónunnar

Seðlabankinn viðheldur kjaraskerðingu og bágri skuldastöðu fólks og fyrirtækja með því að heimila ekki styrkingu krónunnar.

Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, í Fréttablaðinu í dag.

Gylfi segir fyrirætlanir bankans um gjaldeyriskaup jafngilda því að halda niðri gengi krónunnar. Hún þyrfti að fá að styrkjast um 20% hið minnsta.

Fram kemur í Fréttablaðinu að forseti ASÍ Gylfi fundar þessa dagana með aðildarfélögum sambandsins vegna komandi kjarasamninga. Hann segir ljóst að ábati útflutningsfyrirtækja vegna bágrar stöðu krónunnar þurfi að skila sér út í hagkerfið. Merki séu um að fyrirtæki ætli sér að velta kostnaðarauka sínum yfir á almenning. Launafólk geti þá ekki brugðist öðruvísi við en með því að gera launakröfur á móti.

Gylfi segir í Fréttablaðinu að dapurlegt hafi verið að hlusta á forystumenn úr ríkisstjórn róma að krónan væri svo veik að Ísland gæti keppt við láglaunalönd í framleiðslu. „Um það verður ekki nein sátt,“ segir hann.

Frak kemur að hann vonast til þess að ráðherraskipti í ráðuneyti félags- og tryggingamála geti lagt grunn að nánara samstarfi ráðuneytisins og ASÍ.

„Skilaboðin frá mínum félögum eru hins vegar alveg skýr. Ef ekki er hægt að treysta því að ríkisstjórnin standi við loforðin sín þá getum við ekki samið við hana. Menn ætla ekki að láta plata sig út í eitthvert forað og láta skilja sig þar eftir,“ er haft eftir honum í Fréttablaðinu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar