Stjörnuleikstjórinn James Cameron hyggst ganga til liðs við Xikrin-Kayapo ættbálkinn í regnskógum Amazon en þau berjast nú gegn því að stífla verði reist á landsvæði þeirra.
Ættbálkurinn hefur boðið Cameron að heimsækja sig en eins og frægt er orðið fjallaði síðasta mynd hans, The Avatar, meðal annars um náttúru og umhverfisvernd.
James Cameron ætlar nú að taka þvívíddarmyndavél með sér á staðinn en hann hefur tvisvar sinnum áður farið að heimsækja ættbálkinn og sýnir þeim opinberan stuðning.
Hann hefur þegar gert eina stuttmynd um baráttumál þessa fólks og sú mun fylgja viðhafnarútgáfu Avatar á DVD sem kemur út fyrir næstu jól.
Leikstjórinn, sem er 56 ára, sagði í viðtali við dagblað í Sao Paulo að hann hefði ekki getað neitað þeim um aðstoð þegar þau leituðu tli hans.
Gagnrýnendur benda á að stífla þessi sem yfirvöld hyggjast reisa eigi eftir að fæla um 16.000 manns frá heimilum sínum og rúmlega hundrað þúsund ferkílómetra svæði fer undir vatn.
Yfirvöld segja hinsvegar að engum stafi hætta af þessu.

