Jerry Hall hefur loksins opnað sig og greint frá því hvað gekk á í hjónabandi þeirra Mick Jaggers.
Í nýrri bók kallar hún hann meðal annars ‘kynlífsrándýr’ eða ’sexual predator’ og segir hann hafa skipt fíkniefnaþörf út fyrir kynlífsfíkn.
Hún segir að snemma í sambandinu hafi hún orðið vör við að honum var ekki alveg treystandi gagnvart öðrum konum.
Þrátt fyrir að ég elskaði hann og hann sór ást sína til mín þá var ég aldrei viss með hann. Ég hafði náð honum út úr dópinu en hann skipti því bara út fyrir kynlíf.
Árið 1979 var hann ekkert á tónleikaferðum og hafði mikinn tíma aflögu. Þá fór hann að fara mikið út að skemmta sér án mín. Hann sagðist kannski þurfa að fara á fund og hringdi svo og sagðist verða seinn. Slúðurblöðin bendluðu hann við ýmsar stelpur en hann neitaði því alltaf, að sjálfsögðu.
Þau Mick og Jerry Hall byrjuðu saman árið 1977 en þá var hann enn giftur Biöncu Jagger.
Mick og Jerry skyldu svo árið 1999 og áttu þá fjögur börn saman.

