Mánudagur - 6.9 2010 - 08:11 - Ummæli ()

Landeyjarhöfn ónothæf vegna sandburðar. Óvissa ríkir um ferðir Herjólfs á næstunni

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjarhafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina.

Þetta kemur fram á Vísi.

Fram kemur að í síðustu ferð í gær, kenndi skipið grunns bæði á innleið og útleið og dró heldur úr ferð þess í annað skiptið.

Að sögn Vísis var ferð Herjólfs, sem fara átti frá Vestmannaeyjum til Landleyjarhafnar klukkan hálf átta í morgun, því frestað um óákveðinn tíma, jafnvel einhverja daga og er verið að kalla saman fulltrúa Eimskips, sem sér um reksturinn, Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar til að fjalla um málið.

Hugsanlegt er að reynt verði að fá að nota Þorlákshöfn sem varahöfn meðan þetta ástand varir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar