
Arion banki sagður beita bellibrögðum
Lögmaður millistórs fyrirtækis sem glímir við mikinn skuldavanda fullyrðir að forsvarsmenn Arion banka beiti bolabrögðum til að komast yfir rekstur fyrirtækja sem talin eru lífvænleg. Rói bankinn þannig öllum árum að því að koma sínu fólki að rekstrinum. Þetta þurfi að stöðva.
Svo segir Tryggvi Agnarson við fréttastofu RÚV en Tryggvi ver rétt 50 ára gamals fyrirtækis sem hann segir hafa verið í fínum rekstri um árabil. Gengishrunið hafi þó komið illa við fyrirtækið og það skuldi nú talsvert fé. Vilja stjórnendur þó ekki að nafn þess komi fram. Skuldaði fyrirtækið Arion banka 300 milljónir króna en stendur nú í 1100 milljónum.
Bankinn hefur nú fallið frá stefnu sinni á hendur fyrirtækinu án skýringa en aðalmeðferð gegn fyrirtækinu átti að hefjast í dag. Bankinn tjáir sig ekki um málið. Þó er komið fram að orsök þess að fallið er frá málaferlum er að bankinn ætlar sér aðra leið gagnvart fyrirtækinu.
