Mánudagur - 6.9 2010 - 07:35 - Ummæli ()

Morgunblaðið krefst rannsóknar á heljar-tökum Baugsfjölskyld-unnar á bönkunum

Þess er krafist í leiðara Morgunblaðsins í dag að rannsakað verði hvaða heljartök forráðamenn fjárfestingarfélagsins Gaums hafi á stjórnendum Arion banka og Landsbankans og skilastjórnum fyrirrennara þeirra.

Tilefnið er fréttir af kyrrstöðusamningi Arion banka við Baugs fjölskylduna og fjárfestingarfélag hennar, Gaum. Bankastjórinn, Höskuldur H. Ólafsson, neitar að gefa upplýsingar um samninginn. Umboðsmaður skuldara er meðal þeirra sem krefjast þess að bankinn útskýri hvað sé á ferðinni.

Í Morgunblaðsleiðaranum er rifjað upp að eigendur Gaums hafi lýst því yfir opinberlega og fyrir rétti í London að fyrirtækið sé gjaldþrota. En þá sé gerður kyrrstöðusamningur við þá um skuldir félagsins. „Virðist það enn ein greiðslan fyrir að Jóhannes Jónsson hætti að vera stjórnarformaður í umboði bankans í fyrirtæki sem hann og aðrir eigendur þess höfðu sett vendilega á höfuðið,“ segir blaðið.

Morgunblaðið segir að engin skynsamleg skýring hafi verið gefin á kyrrstöðusamningum, „þessum furðulega gerningi.“ Hann hafi meðal annars þá þýðingu að á meðan sé ekki hægt að gera kröfu til þess að tilraunum til þess að skjóta undan eignum verði hætt og slíkum gerðum gjörningum rift, eins og beri að gera í gjaldþrotameðferð. Ekki sé nóg með það. Á meðan á kyrrstöðusamningnum standi gangi dag hvern á þann tíma sem menn hafi til annarra úrræða.

„Bankinn er með öðrum orðum að gefa þessum risaskuldurum sínum sérstakt tækifæri til að komast upp með slíka gerninga. Og það er gert þótt flóð frétta hafi borist um að einmitt þessir sömu aðilar hafi einskis svifist í slíkum efnum,“ segir blaðið.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar