
Maturinn er enn jafndýr og hann var þrátt fyrir styrkingu krónu
Þrátt fyrir mikla styrkingu íslensku krónunnar undanfarin misseri er það ekki að skila sér í vasa neytenda því verðlag hefur haldist óbreytt að mestu leyti. Engin merki sjást á vöruverði að styrkingin sé að skila sér.
Henny Hinz, hagfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, gagnrýnir þetta í fréttum RÚV en fyrr í sumar sögðu talsmenn verslunarinnar að kaupmenn myndu koma frekar til móts við neytendur og taka frekara mið af styrkingu krónu sem kemur þeim mætavel. Ekkert bólar á slíku samkvæmt verðkönnunum ASÍ.
