Wayne Rooney hefur eina ferðina enn verið gripinn með hóru.
Í Daily Mail segir að Wayne Rooney, framherji Manchester United, hafi ítrekað haldið framhjá óléttri eiginkonu sinni með gleðikonunni Jenny Tompson en þá dömu dreymir um að eignast fótboltakappa fyrir eiginmann.
Rooney og eiginkona hans Coleen hafa þekkst frá því á unglingsárum og verið gift í tvö ár en nú er líklegt að vindurinn sé allur úr sambandinu. Hann hefur áður verið gripin með vændiskonum, meðal annars 48 ára gamalli ömmu í latexbúning.
Vændiskonan rukkar rúmar 200 þúsund fyrir kvöldið og var Rooney óspar með peningana því hann kom aftur og aftur að heimsækja Jenny. Við eiginkonu sína á hann að hafa sagt:
þetta er ekkert stórmál’ og ’strákar eru bara strákar’.
Vændiskonan segir bresku slúðurpressunni að þau Rooney hafi farið saman út að skemmta sér og hann hafi meira að segja boðið henni heim þegar eiginkonan var að heiman.
Nú mun tíminn leiða í ljós hvernig fara mun fyrir þessum góða leikmanni en hann hefur staðið sig ákaflega illa að undanförnu og þá er skemmst að minnast heimsmeistaramótsins.
Margir telja líkur á að hann eigi eftir að verða af stórum samningum vegna stjórlausrar kynlífshegðunar sinnar en þó flaug hann til Sviss með breska landsliðinu í dag.

