Þrír múslímskir fjárfestar hafa keypt Ýmishúsið við Skógarhlíð, steinsnar frá slökkvistöðinni, sem þeir hyggjast nota undir menningarmiðstöð. Markmiðið er að skapa aðstöðu fyrir múslíma til að iðka trú sína og kynna íslam fyrir Íslendingum.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag. Húsnæðið losnar þó ekki strax og ekki er gert ráð fyrir því að starfsemi hefjist fyrr en eftir um það bil ár.
„Hugmyndin er ekki að þetta verði moska heldur menningarmiðstöð sem verður opin öllum,“ segir Hussein Aldaoudi, einn fjárfestanna. Blaðið segir að hinir fjárfestarnir tveir séu Sulaiman Abdullah Alshiddi frá Sádi-Arabíu og Sandra Maoi frá Noregi. Sjálfur sé Aldaoudi frá Svíþjóð og búsettur þar.
Fréttablaðið hefur eftir Aldaoudi að um 1.500 múslimar séu á Íslandi og sé löngu orðið tímabært að komið verði upp aðstöðu fyrir þá. „Þeir hafa verið að leigja húsnæði hér og þar en vantar varanlegan samastað,“ segir hann.
Haft er eftir Aldaoudi að ekki sé þörf á mosku hér á landi. Múslímar á Íslandi hafi aðlagast samfélaginu vel. „Við getum beðið hvar sem er en menningarmiðstöðin verður þó án efa búin bænarsal ásamt öðru.“
Aldaoudi segir að fjögurra manna stjórn á Íslandi muni annast framkvæmdina næstu mánuði. Talsmaður þeirra er Karim Askri, varaformaður Menningarseturs múslíma. Hann segir kaupverðið á bilinu 240 til 250 milljónir króna. Fram kemur að Menningarmiðstöðin tengist ekki Félagi múslima á Íslandi.
Fréttablaðð skýrir jafnframt frá því að ný borgarstjórn hafi tekið vel í hugmyndir Félags múslima um lóð undir mosku. Sé vonast til þess að hægt verði að útvega slíka innan skamms tíma.
